mig langar að gráta

...
mbl.is Erfitt að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég vakna til lífsins

Við sólina sem skín úti, það er komið vor og ekki hægt að koma börnunum inn. Er enn í skólanum og klára í júní. Var svo að sækja um skartgripahönnun, veit ekki hvort ég hafi þá menntun til að komast inn en ákvað samt að prófa, það kostar víst ekkert að sækja um svo ég ákvað að freista gæfunnar. svo kemur í ljós vonandi í næstu viku hvort ég komist í inntökuprófið og svo eftir það hvort ég komist inn. Spennó allt saman.

jónaspæjó


Bróðir minn hetjan

...fór inn í brennandi hús og kom fólkinu út. Þetta er alveg típískt hann, að hugsa ekki en gera án þess að hugsa um hvort hann sjálfur gæti skaðast eða ekki.

Ég er svo stollt af honum :)


Gleðilegt ár elskurnar

og gangið hægt um gleðinnar dyr.


Bráðum koma blessuð jólin

IMG_8482 Bara svona að dropp' inn hæ-i. Allt í rólegheitum hjá okkur, ekki til jólastress. Kannsi aðeins of róleg yfir þessu en hva þetta eru bara jólin, þau koma og fara hvort sem stressið er eða ekki, þannig að þá er bara best að sleppa að stressast og njóta bara, ekki satt?

Fór með Berglindi vinkonu í hygge bæjarferð í dag, fórum á kaffihús, kíktum í nokkrar búðir og fengum okkur svo sushi, ekkert smá kósí og næs. 

Ég fann mér vintage kjól sem ég verð fín í um áramótin, himinnblár kjóll, og er ég eins og álfaprinsessa í honum, með mitt síða ljósa hár, hefði passað fínt við hliðina á Lególas :) 

Á meðan var Sindri sveittur heima með snarvitlaus börn upp um alla veggi og UNGfrúin bara í hygge nygge..svona er þetta stundum.

Annars hlakka allir til jólanna hér, búið kaupa kalkúninn og held ég allt með honum, svo erum við svo lánsöm að tengdó sendu hangikjöt, sem borðað verður á jóladag og svo er okkur boðið í mat annan í jólum og á sunnudaginn, hina dagana verður kalkunnin étinn inn að beini :) mmmm dejligt.

Jæja elskurnar megi guð gefa ykkur gleðileg jól og hamingju í hjarta yfir hátíðarnar..og alltaf auðvitað, en jólin eru góð til að minna á auðmýktina og það góða í okkur..

Ást og krammer..

 

 


Góðann daginn

Er heima í dag, Eldar brá höfðinu fyrir utan rúmgaflinn og ældi á gólfið..huggulegt en ég er þakklát fyrir að hann komi ekki uppí til okkar og geri þetta þar eins og áður hefur gerst og ég standandi í sturtunni með fínu rúmfötin að skola. Sindri fær yfirleitt heiðurinn af að þrífa æluna, ég get það bara ekki nema gefa frá mér undarleg hljóð.

Sindri fór með krílin 2 á leikskólann og ég segi við þau að ég elski þau og Breki segir "við vitum það mamma" svo kyssti hann mig örugglega 4 sinnum á leiðinni út, ohh hvað svona getur gert mikið fyrir mig og yljað.

Annars verð ég að segja að ég er fegin að vera heima, finnst yndislegt að eiga frídag og ætla ég að nota hann til að föndra, er alveg að tapa mér í föndrinu, og kaupi og kaupi allskonar föndur dót svo mikið sem mig langar að gera en ekki endilega viss um að ég geti gert þetta allt.

Er td að sauma jólasvein og að setja glimmer á köngla og að klippa út engla og setja glimmer á þá og að búa til kúlur út silfruðum pípuhreinsurum og setja bleikar og túrkís perlur inni og að gera krans á útihurðina með fjólubláum pallíettum og glimmer og dóti og að sauma út engla, elska engla! Og að klippa út bleika og túrkís hreindýr og líma perlur og glimmer á...ohh ég er að tapa mér í glimmerinu. Svo er ég búin að festa glimmer glansmyndir af englum á eldhúshurðina.

og vitiði það læddist að mér sú hugsun í gær að ég væri alveg til í að eiga hvítt plast jólatré, svona amerískt, þori samt varla að segja frá því.. í ljósi þess að plasttré er e-ð sem ekki fær að stíga fæti inn fyrir mínar dyr. 

Í ár nefnilega er jólaskrautið hjá mér m.a BLEIKT, FJÓLUBLÁTT og TÚRKÍS, engir hefðbundnir jólalitir eins og rautt og grænt, jú kannski skærgrænt en ekki jólagrænt. Er búin að finna út úr því að mér finnst það ekki fallegt lengur. Reyndar er jólasveinninn jólarauður og geti verið að ég gefi hann bara því hann passar ekki inn í glimmer kitch heimagerða jólaskrautið.

Æ já ég veit ég er soldið (miiikið ef Sindri ef spurður) sérvitur en þannig er ég bara og mér þykir vænt um mig þrátt fyrir það :)

Keypti líka um daginn ekkert smá fallega glugga jólastjörnu, þið vitið svona með ljósi. Hún er alveg risa stór, 70 þvermál og að sjálfsögðu BLEIK og TÚRKÍS. Hún er eiginlega aðeins of stór í stofugluggann en hangir bara í loftinu. í búðinni voru þvílíkt margar gerðir og ég var örugglega í 1/2 tíma að ákveða mig hvað ég skildi velja og varð þessi bleika fyrir valinu.

Svo hef ég aldrei kynnst karlmanni sem er eins mikið jólabarn og Sindri, hann vill fylla hér allt af jólaskrauti svo hlustar hann bara á jólalög á ipodinum í skólanum núna. Í morgun áður en hann fór í skólann varð hann bara að sýna mér 1/2 tíma jólamynd  frá 1700 og súrkál með Frank Sinatra og Bing Crosby þar sem þeir syngja jólalög "finnst þér þetta ekki yndislegt Jóna?" Það tók hann heila eilífð að hlaða þessu niður svo núna verður þetta keyrandi fram að jólum og Sindri með tár í augunum, hann er yndislegur þessi elska.

Mér finnst æði að eiga svona einn frídag, átti hvort eð er ekki að vera á verkstæðinu í dag heldur á einhverjum sikkerhedskursus þannig að ég er bara fegin að vera heima í kósí. Ef ég ætti að vera á verstæðinu hefði verið erfiðara að vera heima, elska þetta bara. Er í lokaverkefni fram að jólum, er að gera 3 kílóa silfurhálsmen, neinei kannski ekki alveg en við fengum verkefni að gera keðju með lás og þrem endurtekningum, þannig að við höfum frjálsar hendur hvernig keðju.

Ég er að gera silfur hálsmen með 3 kúlum (holum að innan) og 3 fuglum sett saman með litlum hlekkjum, allt voða táknrænt, set kannski inn mynd ef ég klára hana f jól og útskýri táknlegheitin. Þannig að ég sat sveitt í gær og lóðaði eins og 80 6mm hlekki saman.

Úti liggur mjöll yfir öllu, vona það haldist yfir jólin. Elska þegar snjónum kyngir niður í logni og myrkri og jólaljós út um allt, mmmmm.

knús til ykkar

 

 


Ótti Ótti Ótti Ótti

Af hverju erum við mannskepnan svona þjökuð af ótta? Afhverju erum við svona hrædd og við hvað erum við svona hrædd? Hvort annað? Guð? Djöfulinn? Okkur sjálf? Hvern?

Ég held að við séum skít hrædd við hvort annað og Guð reyndar líka. Afhverju þurfum við alltaf að vera að standa okkur, fyrir hvern erum við að standa okkur?  Afhverju getum við ekki bara gefist upp? Hverju höfum við að tapa að falla á hné og segja "ég get ekki meir, ég þarf hjálp" "ég get þetta ekki ein(n)" Hver er veikleikinn við að gera þetta? 

Afhverju erum við alltaf í endalausri keppni, afhverju getum við bara ekki elskað hvort annað eins og við erum. Bæði elskað okkur sjálf og aðra án þess að þurfa alltaf að vera betri? Og láta aðra vita að við erum betri?

 En í þjóðfélaginu er fólk veikgeðja ef það biður um hjálp og tala nú ekki um að treysta Guði fyrir öllu, hvaða djöf..aumingjaskapur er það.. auðvitað eigum við bara að treysta á okkur sjáf.. við erum hetjur, mætum í vinnuna veik, fáum háar einkunnir, pískum börnin okkar áfram svo aðrir geti séð hvað við stöndum okkur vel og erum góðir uppalendur..en erum algjörlega andlega fjarverandi een með allar þeóríur á hreinu, það er mjög mikilvægt.

Við meigum heldur ekki tala eða segja frá veikleikum okkar og að við höfum fengið hjálp af því að við gátum ekki haft allt á herðum okkar. Maður fer ekki í 12 spora prógram það er e-ð halelúja og guð og svoleiðis..maður fer ekki til þerapista og maður gerir það þá segið maður engum frá því.

Það eru allir að kúldrast með sinn ótta í sínu hvoru horninu því enginn vill viðurkenna vanmátt sinn allir að halda í síðasta haldreipið út á við. Við erum ekki aumkunarverð nema vera með blæðandi magasár, hjartsláttartruflanir, ælandi og spúandi, een við erum dugleg, þaað skiptir öllu. Hvað er svona duglegt við þetta??

Afhverju meigum við ekki vera með meðal einkunnir, á ljótri druslu, í lítilli íbúð, fara ómáluð í ljótum skóm út í búð, hafa tíma fyrir börnin okkar, vera heima þegar við erum lasin ÁN ÞESS AÐ VERA MEÐ SAMVISKUBIT. Afhveju þurfum við allaf að standa okkur svona svakalega vel að það vægir við óeðli?

Svo eru við svo óttaselgin að við dæmum stöðugt hvort annað til að upphefja okkur sjálf, við hvað erum við hrædd?

Afhverju erum við svona hrædd að það segir til um hvernig manneskjur við erum eftir því í hvaða menntaskóla við göngum eða hvaða línu við völdum í iðnskólanum.

Afvherju getum við ekki mætt hvort öðru þar við erum hverju sinni, afhveju meigum við ekki fá lélega einkunn fyrir verkefni, vera soldið vitlaus stundum, viðurkenna vanmátt okkar.

Afhverju óttustum við hvort annað svona svakalega?

Ég held að við þurfum að staldra aðeins við, horfa á það fallega í fari hvers og eins og gera okkar besta á þeim stað sem við nú erum.

En við höfum víst öll val og hvað veljum við?

 Ást

   


Nederlag

Ég tók út fimmhundruð danskar krónur í gær og það gerir svo mikið sem SEXTÁNÞÚSUND-FJÖGURHUNDRUÐ-ÞRJÁTÍU OG SEX KOMMA FIMMTÍU OG FIMM íslenskar krónur. 

SHITT!!! ég segi nú bara ekki annað. Ég segi það hér og nú að þið sem eruð vön að gefa okkur jólagjafir getið sleppt því að kaupa nokkuð því það koma engar jólagjafir frá okkur í ár.

5000 ísl eru 152 danskar krónur, hahahahah þetta er djók, svo ekki sé meira sagt.

Hef ekkert meira að segja en það að ég er að fara að þunglyndast yfir kartöflusúpunni. 

  

love peace & happyness en als ekki nockness

 


ég er svo glööð

Hélt að þetta væri síðasta vikan í skólanum... þetta átti að vera síðasta vikan í skólanum en ég fékk tækifæri til að sækja um 10 auka vikur. Þurti að fara í viðtal og sýna það sem ég er búin að gera og fékk svo að vita í gær að ég komst áfram ásamt 3 öðrum, mega glöð.

Hélt svo að ég væri komin í langt jólafrí fram yfir áramót eftir þessa viku en fékk svo að vita í dag að við eigum að mæta á mánudaginn og verð fram í miðjan mars.

er ekkert smá glöð, ég var heldur ekki að trúa því að ég væri að fara að hætta. Var reyndar búin að sjá langa jólafríið í hillingum þar sem ég bjóst ekki við öðru en er mjög sátt við þetta núna, ætlaði líka að nota fríið í að fara á milli gullsmiða en þetta er frábært tækifæri til að verða betri og læra nýja hluti, svo get ég líka sýnt vel gerðari hluti þegar ég fer að sækja um praktík.

Annars er ég og börnin búin að vera að jólaföndra, hér verður allt í heimalöguðu jóladínguldángli upp um alla veggi, jólatré, hreindýr og alskonar fögnuður með glimmer, perlum og látum...Guuuuðmundur minn hvað ég hlakka til jólanna.

Knússs


Skemmtileg..

skrif hjá honum.

Algerlega eins og ég upplifi þetta líka búandi í Danmörku. Held að margir sem lesið hafa og bloggað um séu ekki alveg að skilja greinina, maður þarf að vera nokkuð vel inní tungumálinu til að fatta.

 

djö... hálsríg er ég með eftir lesturinn....á hlið.


mbl.is Hjálp, ég er Íslendingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband